3. nóvember 2011 Nú er fyrstu 4 bækurnar í bókaflokknum Grallarasögur komnar út á táknmáli, en í vikunni bættust við þrjár bækur. Markmið með útgáfunni er að stuðla að því að heyrnarlaus börn geti einnig nýtt sér efnið til fróðleiks og skemmtunar. Það var Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sem sá um gerð táknmálsútgáfunnar og táknmálsþulur er Kolbrún Völkudóttir.
Lesa meiraTag: Rex
Eyjafréttir: Kristleifur í Oddinum bauð 5 ára börnum í sögustund
Eyjafréttir 22. desember 2010 Kristleifur Guðmundsson, eigandi verslunarinnar Oddsins bauð nemendum í 5 ára deild Grunnskóla Vestmannaeyja í heimsókn til sín á mánudaginn. Jólaundirbúningurinn er nú á lokastigi en biðin er börnunum erfið. Því var það kærkomið tækifæri fyrir þau að brjóta upp daginn, kíkja í Oddinn, fá sleikjó og sögulestur í kaupbæti. Verslunareigandinn sjálfur las […]
Lesa meiraGrallarar og Tinna táknmálsálfur á degi íslenskrar tungu – Myndir
16. nóvember 2010 Í tilefni af degi íslenskrar tungu í dag var Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra með dagskrá fyrir heyrandi og heyrnarskert börn úr elstu deild leikskólans Sólborgar í Reykjavík. Nýjasta bókin um grallarana þrjá úr Sandgerði þau Glingló, Dabba og Rex var lesin og flutt á táknmáli og gaf höfundur börnunum eintak af bókinni. Tinna […]
Lesa meiraMorgunblaðið: Gefur út vísnabók fyrir börn á táknmáli
Morgunblaðið 20. september 2010 Tinna táknmálsálfur túlkar texta og ljóð í sérstakri vefútgáfu Höfundurinn vildi að öll börn gætu nýtt sér efnið Þegar kisan Glingló tekur upp á því að stríða bola snýr hann vörn í sókn og hún lærir dýrmæta lexíu. Um þetta fjallar ein saga í nýjustu bókinni um Grallarana sem kom út á dögunum, […]
Lesa meiraÍ fyrsta sinn á Íslandi
16. september 2010 Í dag kom út táknmálsútgáfa af barnabókinni Sprellað í sveitinni með gröllurunum Glingló, Dabba og Rex og er það í fyrsta sinn sem ljóð á táknmáli eru gefin út fyrir börn. Markmið með útgáfunni er að stuðla að því að heyrnarlaus börn geti einnig nýtt sér efnið til fróðleiks og skemmtunar. Eftir því sem við […]
Lesa meiraTíðindin: Grallarar í Sandgerði
Tíðindin 29. júní 2010 Fjórða bókin í bókaflokknum Grallarasögur væntanleg. Hjónin Selma Hrönn Maríudóttir og Smári Valtýr Sæbjörnsson reka fyrirtækið Tónaflóð í Sandgerði. Fyrirtækið var í upphafi stofnað fyrir um tuttugu árum þegar Selma gaf út hljómplötu með lögunum sínum. Hún fékk til liðs við sig þekkta tónlistarmenn og segir sjálf frá að platan hafi […]
Lesa meiraÞetta vilja börnin sjá 2010
11. febrúar 2010 Nú stendur yfir sýningin Þetta vilja börnin sjá í Gerðubergi. Á sýningunni má sjá myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem út komu árið 2009 og þar eru m.a. myndskreytingar úr nýjustu bókinni um Glingló, Dabba og Rex. Sýningin stendur yfir í Gerðubergi til 7. mars. Við hvetjum alla unnendur íslenskra barnabóka að skoða þessa […]
Lesa meiraLeikskólabörn á leikskólanum Geislabaugi fengu Grallarasögur að gjöf
20. desember 2009 Foreldrafélag leikskólans Geislabaugs aðstoðaði jólasveinana við kaup á jólagjöfum fyrir jólaball sem haldið var í leikskólanum 18. desember sl. Fyrir valinu urðu bækur grallaranna og kunnum við foreldrafélaginu bestu þakkir fyrir.
Lesa meiraKristleifur í Oddinum las um grallarana
Leikskólinn Sóli í Vestmannaeyjum, 18. desember 2009 Fimmtudaginn 17. desember fóru tvær elstu deildarnar okkar (Gerði og Höfn) í gönguferð í Oddinn til hans Kristleifs þar sem að hann las fyrir okkur bókina um Grallarana í Vestmannaeyjum. Fengum við að sjá myndirnar úr bókinni á stórum sjónvarpsskjá. Kristleifur gaf börnunum kókómjólk og kanilsnúð á meðan […]
Lesa meiraVíkurfréttir: Ný barnabók úr Sandgerði – Vandað barnaefni með fræðsluívafi
Hlaut styrk frá Menningarráði Suðurnesja Víkurfréttir 22. október 2009Í Sandgerði er framleitt barnaefni sem er á margan hátt frábrugðið því sem gengur og gerist. Um er að ræða skemmtiefni með fræðsluívafi sem samanstendur af bókum fyrir börn á aldrinum 2-6 ára í bókaflokknum Grallarasögur og vefnum www.grallarar.is sem styður við bækurnar. Selma Hrönn Maríudóttir sem […]
Lesa meiraLeikskólabörn á Hornafirði fengu gjöf frá Gröllurunum
26. október 2008 Öll leikskólabörn á Hornafirði fengu í vikunni bókagjöf úr Sandgerði, en hvert barn fékk eintak af báðum bókunum um grallarana Glingló, Dabba og Rex. Selma Hrönn Maríudóttir höfundur og útgefandi bókanna gaf 260 bækur ásamt Matreiðsluklúbbnum Freistingu, einum af velunnurum grallaranna sem styrkti gjöfina. Hugmyndin að bókagjöfinni kviknaði í tengslum við sýninguna […]
Lesa meiraMávaungi hefur gert sig heimakominn hjá gröllurunum
7. september 2008 Síðustu daga hefur mávaungi gert sig heimakominn hjá hinum lifandi fyrirmyndum grallaranna, Glingló, Dabba og Rex. Grallararnir leyfa unganum að dunda sér í garðinum. Ekki er ljóst hvers vegna unginn getur gengið svona óáreittur um garðinn, en líklegt þykir að hér sé komin sögupersóna úr bókinni Sumar í Sandgerði að hitta […]
Lesa meira