Leikskólabörn á Hornafirði fengu gjöf frá Gröllurunum

26. október 2008

Öll leikskólabörn á Hornafirði fengu í vikunni bókagjöf úr Sandgerði, en hvert barn fékk eintak af báðum bókunum um grallarana Glingló, Dabba og Rex. Selma Hrönn Maríudóttir höfundur og útgefandi bókanna gaf 260 bækur ásamt Matreiðsluklúbbnum Freistingu, einum af velunnurum grallaranna sem styrkti gjöfina.

Hugmyndin að bókagjöfinni kviknaði í tengslum við sýninguna “Þetta vilja börnin sjá” sem er nú orðin farandsýning á myndskreytingum íslenskra barnabóka. Sýning þessi hefur verið haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Reykjavík síðan árið 2002. Menningarmiðstöðin á Hornafirði falaðist svo eftir því á síðasta ári að sýningin yrði send út á land og var hún fyrst sett upp í Nýheimum á Hornafirði. Í kjölfarið hafa margir sýnt sýningunni áhuga og hefur hún m.a. verið sett upp í gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði, á Amtsbókasafninu á Akureyri, í Safnahúsi Borgarfjarðar og í Sögusetrinu á Hvolsvelli.

Okkur aðstandendum Grallaranna finnst þetta frábært framtak hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar og fannst vel við hæfi að gefa leikskólabörnunum á Hornafirði eintak af Grallarasögunum. Teikningar eftir Brynhildi Jenný Bjarnadóttur úr báðum bókunum hafa
 verið á sýningunum í Nýheimum. Starfsmenn Menningarmiðstöðvarinnar tóku að sér að fara í leikskólana og afhenda bækurnar fyrir okkur og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Við þökkum Menningarmiðstöð Hornafjarðar og Matreiðslubklúbbnum Freistingu kærlega fyrir framlag sitt við að vekja athygli á íslensku barnaefni.

Close Popup

Grallarar.is notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

GDPR stillingar
Þessar vafrakökur hafa með stillingar notandans að gera varðandi samþykki á vafrakökum á grallarar.is
  • wordpress_gdpr_allow ed_services
  • wordpress_gdpr_cooki es_allowed
  • wordpress_gdpr_cooki es_declined
  • wordpress_gdpr_servi ces_allowed_temp

Kerfiskökur
Þessar kökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru því sjálfkrafa virkar.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec
  • elementor
  • wp-wpml_current_lang uage

WooCommerce
Við notum Woocommerce verslunarkerfið. Í pöntunarferlinu verða tvær vafrakökur geymdar. Þær eru nauðsynlegar til að hægt sé að nota kerfið og því ekki hægt að slökkva á þeim.
  • woocommerce_cart_hash
  • woocommerce_items_in_cart

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur
Open Privacy settings