Verðlaun og styrkir

Selma Hrönn Maríudóttir hefur hlotið eftirfarandi verðlaun og styrki fyrir verkefnið, sem er ómetanlegur stuðningur við þróun þess.

Verðlaun fyrir besta barnaefnið á netinu

Hugmyndasmiðir tveggja barnavefja hlutu verðlaun SAFT fyrir besta barnaefnið á netinu árið 2013. Selma fékk verðlaun fyrir vefinn grallarar.is og deildi verðlaununum með Önnu Margréti Ólafsdóttur leikskólastjóra sem fékk verðlaun fyrir vefinn paxel123.com

Í umsögn dómnefndar um Grallarasögur segir m.a., að verkefnið sé heildstætt með margvíslega notkunarmöguleika og mikla þróunarmöguleika í margar áttir. Það  sé skemmtilegt, fræðandi og krefjandi og tali beint til aldursflokksins sem það sé hugsað fyrir. Hönnun og myndefni sé í stíl við innihaldið, það sé til fyrirmyndar að bakland efnisins sé skýrt og traust, þ.e. fjölskylda grallaranna.

SAFT er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi og eru verðlaunin veitt í tengslum við sameiginlegt átak netöryggismiðstöðva í Evrópu til að vekja athygli á gæðaefni á netinu fyrir börn og unglinga.

Frá vinstri: Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra,
Selma Hrönn Maríudóttir, Anna Margrét Ólafsdóttir, fulltrúi SAFT.

Bókagjafir til barna

Grallarabækurnar hafa í gegnum tíðina ratað í marga gjafapakka þar sem félög, skólar og fleiri góðir aðilar hafa keypt bækurnar til gjafa við ýmis tækifæri.

Styrkir:
2011  – Styrkur úr Þróunarsjóði námsgagna.
2011 – Styrkur frá Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar.
2008 – Styrkur frá Menningarráði Suðurnesja.
2006 – Frumkvöðlastyrkur frá Sandgerðisbæ.

Samstarf við Reykjanes jarðvang / Reykjanes Geopark

Eitt af verkefnum jarðvangsins er að kynna það sem Reykjanesskaginn hefur uppá að bjóða fyrir yngstu kynslóðinni. Hugmyndin var að yngstu íbúar og ferðamenn á þessu svæði fengju tækifæri til að kynnast jarðfræði, landafræði og staðháttum svæðisins á skemmtilegan hátt í gegnum barnabókmenntir. Reykjanes jarðvangur samdi því við Selmu Hrönn Maríudóttur um útgáfu á bók sem ætluð er fyrir börn á aldrinum 6 – 10 ára og gerist á Reykjanesskaganum.

Jarðvangurinn styrkti verkefnið með því að gefa bækur í alla leik- og grunnskóla á Suðurnesjum og voru fyrstu eintökin afhent í Grunnskólanum í Sandgerði við upphaf jarðvangsviku á Reykjanesi.

Frá vinstri: Eggert Sólberg Jónsson verkefnastjóri Reykjanes jarðvangs,
Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skólastjóri Sandgerðisskóla og Selma Hrönn Maríudóttir höfundur Grallaranna.

Grallarar.is notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á nytt.grallarar.is

• CookieConsent


Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Við notum Woocommerce verslunarkerfið. Í pöntunarferlinu verða tvær vafrakökur geymdar. Þær eru nauðsynlegar til að hægt sé að nota kerfið og því ekki hægt að slökkva á þeim.
  • woocommerce_cart_hash
  • woocommerce_items_in_cart

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur