Það sem þarf að gera fyrst:
Þrífið tómatana undir köldu vatni.
Skerið sneið af toppnum á tómötunum (Þetta má fullorðna fólkið bara gera).
Skafið innan úr tómötunum með teskeið.
Skerið laukinn í smá bita og blandið saman við saltið, piparinn, sítrónusafann og rifna ostinn.
(Skiljið smá rifinn ost eftir)
Opnið túnfiskdósina og hellið vatninu úr dósinni. Rífið túnfiskinn niður í smáa bita (notið gaffal).
Blandið öllu saman og fyllið tómatana með fyllingunni og stráið rifna ostinum yfir.
Setjið tómatana í eldfast mót í ofn á grill, þar til gullinbrúnn litur er kominn á tómatana.
Mjá, verði ykkur að góðu!