Innihald:
120 gr smjörlíki
200 gr suðusúkkulaði
10 msk síróp
400 gr Rice Krispies
Annað:
Form
Rautt sprittkerti
Skraut
Aðferð:
Smjörlíki, sýróp og súkkulaði er brætt saman í potti og hrært stöðugt í á meðan með sleif.
Þegar allt er orðið vel blandað er Rice Krispies hellt út í pottinn og því hrært varlega saman við blönduna. Potturinn er tekinn af hellunni og blandan er sett í form með teskeið.