Leikskólinn Sóli í Vestmannaeyjum, 18. desember 2009
Fimmtudaginn 17. desember fóru tvær elstu deildarnar okkar (Gerði og Höfn) í gönguferð í Oddinn til hans Kristleifs þar sem að hann las fyrir okkur bókina um Grallarana í Vestmannaeyjum. Fengum við að sjá myndirnar úr bókinni á stórum sjónvarpsskjá. Kristleifur gaf börnunum kókómjólk og kanilsnúð á meðan þau hlustuðu á söguna. Vakti þessi uppákoma mikla lukku.
Viljum við þakka Kristleifi fyrir gott framtak :o)