Grallarar á ferð um Ísland – Selma Hrönn verðlaunuð  fyrir barnaefni á netinu

Morgunblaðið 8. febrúar 2013

„Þetta eru verðlaun sem eru veitt í tengslum við sameiginlegt átak netöryggismiðstöðva í Evrópu til að vekja athygli á gæðaefni á netinu fyrir börn og unglinga,“ sagði Selma Hrönn Maríudóttir, sem hlaut í vikunni verðlaun SAFT fyrir besta barnaefnið á netinu árið 2013. SAFT er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi.

Selma fékk verðlaunin fyrir vefsíðuna grallarar.is, sem byggist á Grallarabókum Selmu. „Vefurinn er algjörlega laus við auglýsingar og annað efni sem gæti leitt börnin inn á vafasamar vefsíður,“ sagði Selma.

Sögur Selmu, sem eru með fræðsluívafi, fjalla um kisurnar Glingló og Dabba og hundinn Rex. Sögurnar gerast víðsvegar um landið og er markmið Selmu að láta eina sögu gerast í hverjum landshluta. Grallararnir hafa heimsótt Sandgerði, Vestmannaeyjar og fleiri staði en nýjasta sagan, Hopp og hí í Hólminum, gerist í Stykkishólmi. Þar skoða sögupersónurnar meðal annars Súgandisey og vitann ofan á henni, sem er meira en 100 ára gamall eins og kemur fram í máli einnar af persónum Selmu.

Smáforrit í vefverslun Apple

Selma hefur ekki látið sér nægja að gefa út bækur og setja upp vef á íslensku í tengslum við bækurnar. Í fyrra gaf hún út smáforrit á ensku byggt á bókunum, en íslensk útgáfa af smáforritinu er í vinnslu. Grallararnir kallast á ensku „Perky Pranksters.“ Selma ákvað ásamt þýðanda að ekki væri hægt að nota nafnið Grallarar erlendis því hún vildi að nafnið væri jafnlýsandi á ensku og það er á íslensku.

„Ég tók svo þá ákvörðun að gera smáforritið fyrst á ensku þar sem það er mjög lítið af upplýsingum eða öryggisrýnihópum starfandi á Íslandi. Erlendis eru margir hópar kennara, foreldra og forritara sem eru mikið að skoða þessi mál og ég fékk mikið af ábendingum og gagnrýni frá þeim sem ég mun nota til að gera íslensku útgáfuna enn betri en þá erlendu.“

Búið er að gefa út fimm bækur og sú sjötta er í vinnslu. Af þeim fimm bókum sem komnar eru út á íslensku hafa fjórar verið þýddar á táknmál.

GRALLARARNIR LENGI Í VINNSLU HJÁ SELMU

Kisurnar kveikjan að bókunum

Grallararnir þrír, kisurnar Glingló og Dabbi og hundurinn Rex, eiga sér fyrirmyndir í raunveruleikanum. Selma fylgdist grannt með köttunum sínum tveimur og þótti hegðun þeirra áhugaverð. Árið 2003 þegar kettirnir voru fimm ára gamlir setti Selma sér það markmið að eftir tíu ár ættu Grallararnir að vera komnir á gott skrið. „Það mætti því segja að þessi tímarammi minn hafi staðist ágætlega. Verðlaunin frá SAFT og útgáfa smáforritsins í fyrra benda sterklega til þess að ég sé að minnsta kosti á réttri leið með þetta,“ sagði Selma Hrönn. Sjöttu bókarinnar um Grallarana er að vænta í október en Selma vildi ekki segja hvert sögusviðið væri. „Nei, það er leyndó,“ sagði hún og hló.

Gunnar Dofri Ólafsson
Close Popup

Grallarar.is notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

GDPR stillingar
Þessar vafrakökur hafa með stillingar notandans að gera varðandi samþykki á vafrakökum á grallarar.is
  • wordpress_gdpr_allow ed_services
  • wordpress_gdpr_cooki es_allowed
  • wordpress_gdpr_cooki es_declined
  • wordpress_gdpr_servi ces_allowed_temp

Kerfiskökur
Þessar kökur eru nauðsynlegar til að vefsvæðið virki eðlilega og eru því sjálfkrafa virkar.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec
  • elementor
  • wp-wpml_current_lang uage

WooCommerce
Við notum Woocommerce verslunarkerfið. Í pöntunarferlinu verða tvær vafrakökur geymdar. Þær eru nauðsynlegar til að hægt sé að nota kerfið og því ekki hægt að slökkva á þeim.
  • woocommerce_cart_hash
  • woocommerce_items_in_cart

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur
Open Privacy settings