Eyjafréttir 22. desember 2010
Kristleifur Guðmundsson, eigandi verslunarinnar Oddsins bauð nemendum í 5 ára deild Grunnskóla Vestmannaeyja í heimsókn til sín á mánudaginn. Jólaundirbúningurinn er nú á lokastigi en biðin er börnunum erfið. Því var það kærkomið tækifæri fyrir þau að brjóta upp daginn, kíkja í Oddinn, fá sleikjó og sögulestur í kaupbæti.
Verslunareigandinn sjálfur las upp jólasögu fyrir börnin og varpaði myndum úr sögunni upp á stóran flatskjá þannig að þau gátu fylgst enn betur með framvindu sögunnar. Ekki var annað að sjá en að krökkunum líkaði uppátækið vel.