Fréttir
Frítt fyrir áskrifendur: Tvær nýjar vinnubækur
3. september 2012
Vinnubækurnar eru ætlaðar börnum
á yngsta stigi grunnskóla. |
Nú eru vinnubækur fyrir bækurnar
Sprellað í sveitinni og
Hopp og hí í Hólminum tilbúnar og geta áskrifendur hlaðið þeim niður á pdf sniði af
áskriftarsvæðinu.
Höfundar vinnubókanna eru kennararnir Erla B. Rúnarsdóttir og Margrét A. Sigurvinsdóttir, en þær eru báðar kennarar við Grunnskólann í Sandgerði og eru í lestrarteymi skólans.
Í verkefnunum eru notuð nokkur málfræðiheiti, t.d. samheiti, andheiti, samsett orð, samhljóð og sérhljóð. Þá er einnig unnið með rím, stafarugl, orðarugl og orðaleit svo eitthvað sé nefnt.
Ef notendur hafa gleymt lykilorðinu sínu er hægt að smella á tengilinn "
Gleymt lykilorð?" á innskráningarsíðunni, skrá þar inn netfang og fá lykilorðið sent í tölvupósti. Einnig má senda okkur línu á
[email protected] og við sendum aðgangsupplýsingar til baka.