Forsíða Fréttir Leikir Bækurnar Persónur Vísnagerð Uppskriftir Áskrift og frí bók Netverslun Um okkur Hamur fyrir sjónskerta
Þú ert hér > Grallarar.is > Fréttir

Fréttir

Glingló, Dabbi og Rex í nýjum ævintýrum

Siglfirðingur 11. júní 2014

Í vikunni kemur út bókin „Glingló, Dabbi og Rex – Rassaköst á Reykjanesi” eftir Selmu Hrönn Maríudóttur. Hún tengist Siglufirði, því faðir hennar er Gylfi Ægisson. Selma Hrönn bjó hér í nokkur ár sem barn. Bókin er sjötta bókin í bókaflokknum um kisurnar Glingló og Dabba og hundinn Rex. Þann 5. febrúar 2013, á alþjóðlega netöryggisdeginum, hlaut Selma Hrönn verðlaun í samkeppni um 
besta barnaefnið á Netinu.


Grallarabækur til styrktar Kattholti

Laugardaginn 23. mars n.k. heldur Kattavinafélag Íslands sinn árlega páskabasar í Kattholti. Í tilefni þess gáfu grallararnir félaginu 100 bækur og rennur andvirði sölunnar óskert til Kattholts.

Þetta er í þriðja sinn sem grallararnir færa félaginu bókagjöf og vonumst við til að bækurnar rati á fjölmörg heimili kisuvina sem fyrr.

Á myndinni hér til hliðar afhendir Selma Hrönn Maríudóttir, höfundur grallaranna, Halldóru Björk Ragnarsdóttur, rekstrarstjóra Kattholts, hluta bókanna.

Á næstu mynd tekur Dabbi stöðuna og sendir góða strauma með bókagjöfinni.


Selma Hrönn fær verðskuldaða viðurkenningu

Reykjanesblaðið 21. febrúar 2013

Selma Hrönn Maríudóttir býr í Sandgerði. Ég mælti mér mót við hana og þrátt fyrir að vera önnum kafin gaf hún sér tíma til að spjalla við mig yfir kaffibolla. Hún er eigandi Tónafóðs ásamt manni sínum Smára Valtý Sæbjörnssyni. Hún er rafeindavirki, skáld og tónskáld. Hún fékk nýlega verðlaun fyrir „Grallarana“ sína.

„Þetta eru verðlaun sem eru veitt í tengslum við sameiginlegt átak netöryggismiðstöðva í Evrópu til að vekja athygli á gæðaefni á netinu fyrir börn og unglinga, “ sagði Selma Hrönn Maríudóttir, sem hlaut í byrjun mánaðarins verðlaun SAFT fyrir besta barnaefnið á netinu árið 2013. SAFT er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi.

Verðlaunin fékk vefsíðan Grallarar.is en hún byggist á bókum Selmu. Bækurnar eru orðnar fimm, sú sjötta á leiðinni og eru þær mjög skemmtilegar með fræðsluívafi. Fjórar þeirra hafa verið þýddar á táknmál. Bækurnar eru um kisurnar Glingló og Dabba og hundinn Rex. Þau eru öll til í raunveruleikanum og búa hjá Selmu og fjölskyldu.



Grallarar á ferð um Ísland

Morgunblaðið 8. febrúar 2013


Selma Hrönn verðlaunuð 
fyrir barnaefni á netinu

„Þetta eru verðlaun sem eru veitt í tengslum við sameiginlegt átak netöryggismiðstöðva í Evrópu til að vekja athygli á gæðaefni á netinu fyrir börn og unglinga,“ sagði Selma Hrönn Maríudóttir, sem hlaut í vikunni verðlaun SAFT fyrir besta barnaefnið á netinu árið 2013. SAFT er vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi.

Selma fékk verðlaunin fyrir vefsíðuna grallarar.is, sem byggist á Grallarabókum Selmu. „Vefurinn er algjörlega laus við auglýsingar og annað efni sem gæti leitt börnin inn á vafasamar vefsíður,“ sagði Selma.

Sögur Selmu, sem eru með fræðsluívafi, fjalla um kisurnar Glingló og Dabba og hundinn Rex. Sögurnar gerast víðsvegar um landið og er markmið Selmu að láta eina sögu gerast í hverjum landshluta. Grallararnir hafa heimsótt Sandgerði, Vestmannaeyjar og fleiri staði en nýjasta sagan, Hopp og hí í Hólminum, gerist í Stykkishólmi. Þar skoða sögupersónurnar meðal annars Súgandisey og vitann ofan á henni, sem er meira en 100 ára gamall eins og kemur fram í máli einnar af persónum Selmu.



Verðlaun fyrir besta barnaefnið á Netinu og þátttaka í Evrópusamkeppni

5. febrúar 2013


Í dag, á alþjóðlega netöryggisdeginum, hlaut Selma Hrönn Maríudóttir, höfundur Grallarasagna, verðlaun í samkeppni um besta barnaefnið á Netinu. 

Í umsögn dómnefndar um Grallarasögur segir m.a., að verkefnið sé heildstætt með margvíslega notkunarmöguleika og mikla þróunarmöguleika í margar áttir. Það sé skemmtilegt, fræðandi og krefjandi og tali beint til aldursflokksins sem það sé hugsað fyrir.  Hönnun og myndefni sé í stíl við innihaldið, það sé til fyrirmyndar að bakland efnisins sé skýrt og traust, þ.e. fjölskylda grallaranna.



Grallarastund með afa

4. nóvember 2012
 
Við fengum þessa skemmtilegu mynd og vísu senda frá dyggum lesendum :-)

Með afa gamla á góðri stund
gleðjast þessir drengir.
Grallarar með létta lund
liðið saman tengir.


Frítt fyrir áskrifendur: Tvær nýjar vinnubækur

3. september 2012
 
Nú eru vinnubækur fyrir bækurnar Sprellað í sveitinni og Hopp og hí í Hólminum tilbúnar og geta áskrifendur hlaðið þeim niður á pdf sniði af áskriftarsvæðinu.

Höfundar vinnubókanna eru kennararnir Erla B. Rúnarsdóttir og Margrét A. Sigurvinsdóttir, en þær eru báðar kennarar við Grunnskólann í Sandgerði og eru í lestrarteymi skólans.

Í verkefnunum eru notuð nokkur málfræðiheiti, t.d. samheiti, andheiti, samsett orð, samhljóð og sérhljóð. Þá er einnig unnið með rím, stafarugl, orðarugl og orðaleit svo eitthvað sé nefnt.

Ef notendur hafa gleymt lykilorðinu sínu er hægt að smella á tengilinn "Gleymt lykilorð?" á innskráningarsíðunni, skrá þar inn netfang og fá lykilorðið sent í tölvupósti. Einnig má senda okkur línu á [email protected] og við sendum aðgangsupplýsingar til baka.



Grallaravefurinn á táknmáli

25. mars 2012

Við vorum að ljúka við uppfærslu á vefnum og nú má finna helstu upplýsingar á táknmáli víðs vegar um vefinn. Þegar smellt er á mynd af tveimur höndum eins og sjá má hér til hliðar, opnast gluggi með myndskeiði á táknmáli.

Það var Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sem sá um gerð táknmálsútgáfunnar.
Táknmálsþulur er Kolbrún Völkudóttir.


Frítt fyrir áskrifendur: Ný vinnubók - Ævintýri í Eyjum

8. mars 2012


Nú er vinnubók fyrir bókina Ævintýri í Eyjum tilbúin og geta áskrifendur hlaðið henni niður á pdf sniði af áskriftarsvæðinu.

Höfundar vinnubókarinnar eru kennararnir Erla B. Rúnarsdóttir og Margrét A. Sigurvinsdóttir, en þær eru báðar kennarar við Grunnskólann í Sandgerði og eru í lestrarteymi skólans.

Í verkefnunum eru notuð nokkur málfræðiheiti, t.d. samheiti, andheiti, samsett orð, samhljóð og sérhljóð. Þá er einnig unnið með rím, stafarugl, orðarugl og orðaleit svo eitthvað sé nefnt.

Ef notendur hafa gleymt lykilorðinu sínu er hægt að smella á tengilinn "Gleymt lykilorð?" á innskráningarsíðunni, skrá þar inn netfang og fá lykilorðið sent í tölvupósti. Einnig má senda okkur línu á [email protected] og við sendum aðgangsupplýsingar til baka.



Þetta vilja börnin sjá

7. mars 2012

Nú stendur yfir sýningin Þetta vilja börnin sjá í Gerðubergi. Á sýningunni má sjá myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem út komu árið 2011 og þar eru m.a. myndskreytingar úr nýjustu bókinni um Glingló, Dabba og Rex.

Sýningin stendur yfir í Gerðubergi til 1. apríl.

Við hvetjum alla unnendur íslenskra barnabóka að skoða þessa sýningu.




<<Fyrri      Næsta>>


Til baka