Forsíða Fréttir Leikir Bækurnar Persónur Vísnagerð Uppskriftir Áskrift og frí bók Netverslun Um okkur Hamur fyrir sjónskerta
Þú ert hér > Grallarar.is > Uppskriftir > Blómkál í skrautbúning

Blómkál í skrautbúning

Innihald:
1 stk blómkál
2 stk soðin egg
1 stk tómatur
1 msk smjör
2 msk brauðmylsna
4 msk rifinn ostur


Hvernig er blómkálið sett í skrautbúning?

Þrífið tómatinn undir köldu vatni og skerið hann í litla bita.


Sjóðið blómkálið.

Bræðið smjörið.

Setjið blómkálið í fallegt eldfast mót og hellið smjörinu yfir. 

Stráið brauðmylsnunni yfir blómkálið og setjið tómat bitana, eggið og rifna ostinn ofan á blómkálið.

Setjið eldfasta mótið í ofn á grill, þar til gullinbrúnn litur er kominn á blómkálið.


 


Til baka